Skip to main content

Íslenski smábarnalistinn

Íslenski smábarnalistinn er frumsaminn hérlendis

Íslenski smábarnalistinn er frumsaminn hérlendis og ætlað að meta þroska barna á aldrinum 12-38 mánaða, með því að afla upplýsinga frá mæðrum þeirra.

Listinn skiptist í hreyfi- og málhluta, í mati á hreyfiþroska eru þrír undirþættir lagðir til grunna, þ.e. gróf- og fínhreyfifærni ásamt sjálfsbjörg.

Í mati á málþroska liggja einnig þrír undirþættir til grunna, þ.e. málskilningur og tjáning, ásamt námi. Saman gefa þessir þættir heildarþroskatölu, og á kvarða yfir mælitölur er meðalfærni hvers aldurshóps 100, en meðalgeta flestra liggur á bilinu 85-115.