Þann 4.1.2023 taka gildi nýir gjaldliðir vegna vísitölu- og kostnaðarhækkana. Fast gjald sem innheimt hefur verið undanfarna mánuði er jafnframt fellt niður.
Ekki hefur verið í gildi samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og sérgreinalækna um heilbrigðisþjónustu sl. 4 ½ ár. Sjúkratryggingar hafa ekki hækkað einingaverð í 3 ár þrátt fyrir verulegar vísitölu- og kostnaðarhækkanir.
Til að mæta þessum hækkunum neyðumst við til að bæta við nýjum gjaldliðum, sem greiðast af þjónustuþegum. Jafnframt bætast við gjaldliðir vegna vottorða og bókaðra tíma sem ekki er mætt í eða afbókaðir með eðlilegum fyrirvara.
Að neðan eru nýju gjaldliðirnir, sem bætast við gjaldskrárliði í gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands fyrir þjónustu sérgreinalækna sem ekki hefur verið samið um.
Við vekjum ennfremur athygli á að foreldrar/forráðamenn þurfa sjálfir að gæta þess að tilvísun frá heilsugæslu sé í gildi.
| Barna- og unglingageðlæknar | |
| Gjaldliður | Kr. |
| Stutt viðtal | 1.980 |
| Langt viðtal | 5.148 |
| Foreldraviðtal | 6.435 |
| Greiningarviðtal | 6.930 |
| Rafræn samskipti | 1.188 |
| Fjarviðtal | 2.475 |
| Fjarlækning | 5.148 |
| Fullorðinn stutt | 1.980 |
| Fullorðinn langt | 3.960 |
| Fjölskyldumeðferð | 5.940 |
| Barnalæknar | |
| Gjaldliður | Kr. |
| Viðtal og skoðun (Vs) | 1.980 |
| Vs + sérhæft mat | 5.148 |
| Vs + nákvæm taugaskoðun | 5.148 |
| Langt viðtal | 5.148 |
| Ráðgjafarviðtal | 6.435 |
| Nýir gjaldliðir | Kr. |
| Lyfjaskírteini | 2.690 |
| Vottorð stutt | 5.380 |
| Vottorð langt | 8.070 |
| Umönnunarvottorð | 8.070 |
| Ónýttur tími (fyrsta viðtal) | 8.000 |
| Ónýttur tími (síðara viðtal) | 4.000 |