Skip to main content
Flokkur

Fréttir

Tímabundin breyting á verklagi

Eftir Fréttir

Bið eftir aðkomu geðlæknis fullorðinna er orðin mjög löng á SÓL. Því þarf því miður að gera tímabundið hlé á móttöku þjónustubeiðna frá einstaklingum sem óska eftir ADHD greiningu og eru eldri en 25 ára. Við leitum allra leiða til að bæta úr þessu.

Gleðileg jól

Eftir Fréttir

Starfsfólk SÓLar óskar skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Opnunartími á milli jóla og nýárs er skertur, en við höfum opið fyrir síma fyrir hádegi mánudaginn 29. desember.

Jól og áramót

Eftir Fréttir
Sólarfólk óskar skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á nýju ári. Gleðilega hátíð!
Vekjum athygli á því að lokað verður hjá okkur frá og með 23. desember. Opnum aftur 2. janúar en í millitíðinni er hægt að hafa samband í gegnum tölvupóst á [email protected]

Nýtt verklag

Eftir Fréttir

SÓL tekur ekki lengur á móti þjónustubeiðnum þar sem frumgreining hefur farið fram og óskað er eftir nánari athugun á einkennum ADHD.

Vegna sumarleyfa

Eftir Fréttir

Vinsamlegast athugið að vegna sumarleyfa starfsmanna verður afgreiðsla Sólar lokuð vikuna 17.-21. júlí og föstudaginn 28. júlí ? Hægt er að senda tölvupóst á netfangið [email protected] og verður þeim svarað við fyrsta tækifæri ?

Lengri bið eftir þjónustu

Eftir Fréttir

Vegna mikillar aðsóknar er bið eftir þjónustu Sólar því miður mun lengri en við vildum hafa. Sérstaklega er löng bið eftir þjónustu lækna Sólar. Vakin er athygli á því að ekki er hægt að koma eingöngu til lækna.

ADHD og barnið mitt

Eftir Fréttir

Námskeið fyrir foreldra barna með ADHD

Uppeldisnámskeið fyrir foreldra barna með ADHD á aldrinum fimm til tólf ára. Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á líðan og hegðun barna og þær áskoranir sem geta komið upp í uppeldi barna með þessa og tengdar raskanir. Farið verður yfir ýmsar aðferðir sem byggja á atferlismótun sem henta börnum með ADHD og styðja foreldra við að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem er algengt að komi upp samhliða ADHD.

Námskeiðið er 6 vikna langt og kennt einu sinni í viku, 90 mínútur í senn. Námskeiðið verður kennt eftir hádegi á miðvikudögum frá kl. 15-16:30.

Næsta námskeið fer af stað miðvikudaginn 8. febrúar 2023. Skráning í afgreiðslu SÓLar með því að senda póst á netfangið [email protected] eða í síma 5321500.

Kostnaður:  Foreldrar 110.000 kr og mega tveir aðilar mæta með hverju barni.