Skip to main content
Flokkur

Fréttir

Nýir gjaldskrárliðir barnalækna og barna- og unglingageðlækna í SÓL

Eftir Fréttir

Þann 4.1.2023 taka gildi nýir gjaldliðir vegna vísitölu- og kostnaðarhækkana. Fast gjald sem innheimt hefur verið undanfarna mánuði er jafnframt fellt niður.

Ekki hefur verið í gildi samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og sérgreinalækna um heilbrigðisþjónustu sl. 4 ½ ár. Sjúkratryggingar hafa ekki hækkað einingaverð í 3 ár þrátt fyrir verulegar vísitölu- og kostnaðarhækkanir.

Til að mæta þessum hækkunum neyðumst við til að bæta við nýjum gjaldliðum, sem greiðast af þjónustuþegum. Jafnframt bætast við gjaldliðir vegna vottorða og bókaðra tíma sem ekki er mætt í eða afbókaðir með eðlilegum fyrirvara.

Að neðan eru nýju gjaldliðirnir, sem bætast við gjaldskrárliði í gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands fyrir þjónustu sérgreinalækna sem ekki hefur verið samið um.

Við vekjum ennfremur athygli á að foreldrar/forráðamenn þurfa sjálfir að gæta þess að tilvísun frá heilsugæslu sé í gildi.

Barna- og unglingageðlæknar  
Gjaldliður Kr.
Stutt viðtal 1.980
Langt viðtal 5.148
Foreldraviðtal 6.435
Greiningarviðtal 6.930
Rafræn samskipti 1.188
Fjarviðtal 2.475
Fjarlækning 5.148
Fullorðinn stutt 1.980
Fullorðinn langt 3.960
Fjölskyldumeðferð 5.940
   
Barnalæknar  
Gjaldliður Kr.
Viðtal og skoðun (Vs)        1.980
Vs + sérhæft mat        5.148
Vs + nákvæm taugaskoðun        5.148
Langt viðtal        5.148
Ráðgjafarviðtal        6.435
   
Nýir gjaldliðir Kr.
Lyfjaskírteini 2.690
Vottorð stutt 5.380
Vottorð langt 8.070
Umönnunarvottorð 8.070
Ónýttur tími (fyrsta viðtal) 8.000
Ónýttur tími (síðara viðtal) 4.000

 

 

 

 

 

Jólakveðja og opnunartími yfir jól og áramót

Eftir Fréttir

Sólarfólk óskar skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á nýju ári. ?? Gleðilega hátíð!

Vekjum athygli á skertum opnunartíma yfir jól og áramót en opið verður í Sól dagana 27. og 28. desember en lokað á Þorláksmessu, 23. desember og dagana 29. og 30. desember.

 

DAM meðferð

Eftir Fréttir
DAM meðferð hefst 8. nóvember
Fyrir unglinga á aldrinum 13-18 ára og forráðamenn sem glíma við:
• Miklar tilfinningasveiflur
• Reiðivanda, mikinn kvíða, tómleika, depurð, vanlíðan
• Sjálfskaðandi hegðun og aðra skaðlega áhættuhegðun
• Sjálfsvígshugsanir eða lífsleiðahugsanir
• Samskiptavanda innan fjölskyldu, við jafnaldra og í öðrum félagslegum samskiptum
Unglingur og foreldri/foreldrar mæta vikulega í 2 klst. í senn, í alls 20 vikur. Meðferðin skiptist í 4 lotur og í hverjum hóp eru 5-7 fjölskyldur. Í hóptímunum er kennd færni til að ná markmiðum meðferðarinnar. Á milli tíma eiga foreldrar og unglingar að æfa færniþættina til að tileinka sér þá í daglegu lífi.
Nánari upplýsingar hjá [email protected] eða í síma 5321500
Kan være en tegneserie af 1 person og tekst, der siger "Notum DAM faerni"

Til upplýsingar 

Eftir Fréttir
1. Hjá SÓL leggjum við okkur fram um að mæta þörfum skjólstæðinga okkar eins fljótt og hægt er. En ef þörf er á bráðaþjónustu er bent á bráðaþjónustu Barna- og unglingageðdeildar Landspítala fyrir börn að 18 ára aldri og geðdeild Landspítala fyrir 18 ára og eldri.
 
2. Greiningar sem gerðar eru í SÓL á einhverfurófsröskunum eru nú teknar fullgildar af Tryggingastofnun ríkisins.
 
3. Athugið! Frá og með 19. maí nk. þarf að greiða kr. 2.500 fyrir komu til barnalækna og barna- og unglingageðlækna í SÓL. Þetta gjald er tilkomið vegna samningsleysis sérfræðilækna og óbreyttrar gjaldskrár í tæplega 4 ár.

Vinsamlegast athugið

Eftir Fréttir
Við biðjum okkar skjólstæðinga vinsamlegast að mæta ekki til okkar ef þeir eru með covid-leg einkenni eða önnur veikindi. Hægt er að hafa samband við afgreiðslu í síma 532-1500 eða senda tölvupóst á netfangið afgreið[email protected] til að boða forföll og óska eftir nýjum tíma.
 
Sýnum tillitssemi á biðstofu, grímur eru til staðar fyrir þá sem þess óska.

Opnunartími yfir jól og áramót

Eftir Fréttir

Sólarfólk óskar skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á nýju ári. Vekjum athygli á skertum opnunartíma yfir hátíðirnar og að lokað verður fyrir símsvörun frá 23. desember. Opnum aftur mánudaginn 3. janúar 2022. ?? Gleðilega hátíð!

Breyting á gjaldskrá sálfræðiþjónustu

Eftir Fréttir

Breyting á gjaldskrá sálfræðiþjónustu

Þann 1. apríl næstkomandi mun gjaldskrá sálfræðinga SÓLar breytast. Viðtal sem er 45 mínútur mun kosta 20.000 kr.

Einnig mun kostnaður við greiningarvinnu breytast og er hægt að kynna sér allar breytingar á verðskrá okkar hér á síðunni.

Þessar hækkanir eru vegna aukins launa- og rekstrarkostnaðar.

Þjónustubeiðni fyrir ADHD greiningar 18 ára og eldri frá 1. febrúar 2021

Eftir Fréttir

Þjónustubeiðni fyrir ADHD greiningar 18 ára og eldri frá 1. febrúar 2021

Kæru skjólstæðingar. Breytingar eru á þjónustubeiðnum sem snúa að ADHD greiningum 18 ára og eldri. Nú óskum við eftir því að tilvísun komi frá heilsugæslulækni um greiningu á ADHD.

Þetta er gert til að gera þjónustu heildstæðari þannig að heilsugæslulæknir sé inni í málum og geti því auðveldlega tekið við lyfjameðferð ef til þess kemur. Breytingin tekur gildi 1. febrúar 2021.

Ný og endurbætt heimasíða

Eftir Fréttir

Það var kominn tími á nýja og flotta heimasíðu, svo við fengum snillingana frá Allra Átta til að setja upp glæsilega og snjallvæna vefsíðu. Allra Átta hefur smíðað marga flotta vefi og sérhæfa sig í vefsíðugerð, leitarvélabestun, wordpress vefhýsingu og allri almennri markaðssetningu á netinu.

Vefurinn keyrir á WordPress og sér Allra Átta um að hann sé í öruggri hýsingu.

Við þökkum fyrir nýja vefinn og vonum að hann þjóni núverandi og verðandi skátum með glæsibrag.

Vefur Allra Átta er hér: www.8.is